Bóka stakan tíma

Bóka marga tíma (mánuð/i)

Núna höfum við opnað fyrir að hægt sé að bóka staka tíma og styttri tímabil en 6 mánuði. Við erum að nota tímabundna lausn og treystum við því á heiðarleika viðskiptavina varðandi greiðslur á tímunum.


Til að bóka staka tíma ferðu á Sandkastalinn.skedda.com og tekur frá lausan tíma. Því næst greiðir þú fyrir tímann með því að millifæra inná reikning Sandkastalans 537-26-6758. Kt. 6604210920 og sendir staðfestingu í tölvupósti á netfangið okkar sandkastalinn(hjá)sandkastalinn.is

  • Minnst er hægt að bóka 1 klukkustund á Toyotavellinum en 30 mín í Sandkassanum. Ef það eru aðrar óskir eins og 90 mín eða annað þá hafið samband
  • Hægt er að bóka 7 daga fram í tímann
  • Ekki er hægt að afbóka tíma með styttri fyrirvara en 24 klst
  • Aðgangskóði er sendur í tölvupósti þegar staðfesting á greiðslu berst á netfangið okkar
  • Ef þú vilt bóka til lengri tíma t.d. 1 eða fleiri mánuði er best að byrja á því að skoða í Skedda hvaða tímar eru lausir lengra fram í tímann en 7 daga, og hafa svo samband.